Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ölvaður flugfarþegi ætlaði að keyra heim
Mánudagur 28. nóvember 2016 kl. 12:12

Ölvaður flugfarþegi ætlaði að keyra heim

Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina farþega sem var að koma með flugi til landsins. Hann var grunaður um að vera undir áhrifum áfengis þar sem hann var að aka af stað frá langtíma bílastæðinu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann viðurkenndi að hafa fundið til ölvunaráhrifa við aksturinn og var færður á lögreglustöð þar sem sýnatökur fóru fram. Fyrr í vikunni var annar ökumaður verið handtekinn á Ásbrú, einnig grunaður um  ölvun við akstur.

Síðasta föstudag voru tveir ökumenn handteknir i umdæminu vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á Helguvíkurvegi ók ökumaður bíl sínum aftan á tengivagn flutningabíls. Ökumaðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum og var handtekinn og fluttur á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024