Stuðlaberg Pósthússtræti opið hús 23.8.
Stuðlaberg Pósthússtræti opið hús 23.8.

Fréttir

Ölvaður farþegi týndist í flugstöðinni
Mánudagur 6. febrúar 2017 kl. 13:51

Ölvaður farþegi týndist í flugstöðinni

Lögregla á Suðurnesjum var kölluð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun vegna ölvaðs flugfarþega. Hann var að koma frá Montreal og á leið til Parísar ásamt kærustu sinni. Þegar þau lentu í Keflavík kvaðst hún ekki hafa haft stjórn á honum og hafa týnt honum. Hafði maðurinn drukkið mikið um borð í vélinni. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að farþeginn hafi verið sjáanlega ölvaður og órólegur þegar lögreglumenn höfðu tal af honum. Hann var færður á lögreglustöðina í Keflavík þar sem hann var látinn sofa úr sér.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona