Ólögleg atvinnuþátttaka á borði lögreglu
Nokkur mál, er varða ólöglega atvinnuþátttöku útlendinga, hafa komið til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Viðkomandi áttu flestir það sameiginlegt að vera án dvalar- og atvinnuleyfis.
Í einu tilvikinu var grunur um svarta atvinnuþátttöku. Mönnunum svo og vinnuveitendum þeirra var gerð grein fyrir því að um væri að ræða margþætt brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og væri sú iðja ekki liðin.