Öll framtíðarstörf auglýst hjá Reykjanesbæ
Hjá Reykjanesbæ eru öll framtíðarstörf auglýst. Ekki er auglýst í tímabundnar stöður og eða afleysingar nema í undantekningartilfellum, segir í svari frá bæjarfélaginu við fyrirspurnar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar 29. des. sl.
Spurt var hversu margir hafi verið ráðnir hjá Reykjaensbæ og undirstofnunum utan við afleysingar árin 2009-2011 án auglýsingar og hversu margir þeirra væru enn við störf.
Reykjanesbær auglýsti tvær stöður í auglýsingu í Víkurfréttum í síðustu viku. Annars vegar starf í hæfingarstöðinni sem er dagþjónusta fyrir fólk með fatlanir og síðan eftir matráði á sama stað. Umsóknarfrestur er til 16. jan. í báðum tilfellum.
Myndin er af tveimur hressum köppum í hæfingarstöðinni.