HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 10. desember 1998 kl. 23:47

OLÍUSAMLAG KEFLAVÍKUR SAMEINAST OLÍUFÉLAGINU

Samruni Olíusamlags Keflavíkur hf. og Olíufélagsins hf. Esso var samþykktur á fundi sem haldinn var á mánudag á Glóðinni í Keflavík. Hluthafar í OSK munu við samrunann fá hlutabréf í Olíufélaginu hf. að nafnverði 2.660 fyrir hverjar 10 þús. kr. í hlutafé í Olíusamlagi Keflavíkur og nágrennis hf. Verðmæti Olíusamlagsins er metið á rétt tæpan milljarð króna í þessum samruna og er stærstur hluti þeirrar upphæðar eignarhlutur Olíusamlagsins í Olíufélaginu fyrir samrunann, um 770 millj. Unnið hefur verið að samruna félaganna undanfarna mánuði en hann miðast við 30. júní 1998. Tilgangurinn með samruna félaganna tveggja er að auka arðsemi rekstrareininganna og ná betri árangri í sölu og dreifingu olíuvara. Á fundinum skýrði Jafet Ólafsson, verðbréfamiðlari á Verðbréfastofu Íslands, gangi mála á hlutabréfamarkaði og hvaða möguleika nýir hluthafar í Olíufélaginu hafa, hafi þeir áhuga á að selja sín hlutabréf. Hluthafar í Olíusamlaginu voru 135 og er eignarhlutur þeirra í Olíufélaginu um 14% eftir samrunann. Olíusamlag Keflavíkur og nágrennis fagnaði 60 ára afmæli sínu á þessu ári og var þegar útgerð reis hæst og olíukynding var í húsum með umfangsmikinn rekstur. Við breytingu á húshitun í byrjun síðasta áratugar og niðursveiflu í fiskvinnslu og útgerð breyttust rekstrarlegar forsendur hjá fyrirtækinu mikið. Það lá því beinast við að sameinast stærsta olíufélagi landsins, sem OSK hefur alla tíð verið tengt .
Bílakjarninn
Bílakjarninn