Ólga innan Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur
Talverð ólga hefur verið innan Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur eftir að aðalfundur félagsins fór fram milli jóla og nýárs. Birgir Mar Guðfinnsson var kjörinn formaður en hann hafði betur gegn Magnúsi Sigríðarsyni í kosningu fyrir áramót. Efast var um lögmæti þeirrar kosningar og því var kosið aftur eftir áramót en með sömu niðurstöðu. Birgir Mar er því formaður félagsins.
Talsverður titringur hefur verið innan félagsins í kjölfarið og samkvæmt heimildum Víkurfrétta hefur nýkjörinn formaður átt erfitt með að starfa með stjórn félagsins. Sunnudaginn 20. janúar var boðað til félagsfundar. Þar mættu milli 70 og 80 félagsmenn og fór fram máefnaleg umræða um innri málefni félagsins. Á fundinn mætti bókari félagsins ásamt lögfræði og fulltrúa frá endurskoðunarfyrirtæki til að fara yfir fjármál félagsins. Í kjölfarið sendi félagsfundurinn frá sér eftirfarandi ályktun.
„Fundurinn harmar það upphlaup sem orðið hefur í félaginu frá síðasta aðalfundi. Fundurinn bendir á að meginhlutverk félagsins er að vinna að hagsmunamálum sjómanna. Það verði ekki gert nema að stjórn vinni sem ein heild að félags- og hagsmunamálum þeirra, og láti af ásökunum á fyrri stjórnendur sem ekki eigi við rök að styðjast. Því er skorað á þá aðila sem kosnir voru í stjórn á síðasta aðalfundi að vinna saman,“ segir á heimasíðu Sjómanna- vélstjórafélags Grindavíkur.