Öldauður frá Amsterdam við hlið númer 11
Öryggisgæsla í Flugstöð Leifs Eiríkssonar gerði lögreglunni á Suðurnesjum viðvart í vikunni, þar sem öldauður maður væri við hlið númer 11 í flugstöðinni. Þegar lögreglumenn komu á vettvang reyndist vera um erlendan ferðamann að ræða sem hafði komið með flugi frá Amsterdam.
Hann hafði ekki dregið í gegnum flugstöðina, heldur ákveðið að leggjast til svefns á leiðinni, enda fengið sér hressilega neðan í því meðan á flugferðinni stóð. Lögreglumenn óku honum í hjólastól í gegnum bygginguna og komu honum í leigubifreið sem flutti hann á hótel í Keflavík. Hann var þá kominn sæmilega til sjálfs sín.