Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ólafur Þór Ólafsson frístunda- og menningarfulltrúi í Vogum
Fimmtudagur 5. júní 2008 kl. 15:25

Ólafur Þór Ólafsson frístunda- og menningarfulltrúi í Vogum

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf frístunda- og menningarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga. Hann var valinn úr hópi átta umsækjenda um starfið.

Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt, með framhaldsmenntun í stjórnsýslufræðum, og hefur mikla reynslu af íþrótta- og tómstundarmálum auk viðamikillar þekkingar á málefnum sveitarfélaga.

Hann var íþrótta- og tómstundafulltrúi í Sandgerði í 8 ár og forstöðumaður félagsmiðstöðvar í Hafnarfirði í 4 ár. Auk þess hefur hann sinnt ýmsum félagsstörfum, m.a. gegnt formennsku í Samfés og Íþróttafélaginu Reyni í Sandgerði. Ólafur hefur verið bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ undanfarin 6 ár.

Ólafur kemur til starfa í lok sumars og hefur þá störf á grundvellir nýrrar starfslýsingar. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að úttekt á stjórnskipulagi og starfsemi Sveitarfélagsins Voga og í kjölfarið breytingum sem eru til þess fallnar að bæta enn þjónustu sveitarfélagsins og skilvirkni í rekstri.

Auk nýs starfs frístunda- og menningarfulltrúa hefur nýtt starf bæjarritara verið auglýst og standa viðtöl yfir.

Helstu verkefni frístunda- og menningarfulltrúa er að skipuleggja íþrótta-,  frístunda- og menningarstarf á vegum sveitarfélagsins ásamt því að skipuleggja þjónustu við eldri borgara í formi tómstunda og móta og framfylgja forvarnarstefnu sveitarfélagsins.

Hann annast daglega starfsemi í íþrótta- og frístundamiðstöð og þjónustumiðstöðinni Álfagerði.

Af vef Voga

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024