Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 30. september 2008 kl. 14:22

Ólafur K. Ólafsson settur lögreglustjóri á Suðurnesjum

Ólafur K. Ólafsson, lögreglustjóri og sýslumaður Snæfellinga, hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá 1. október til áramóta. Jafnframt hefur Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, verið settur aðstoðarlögreglustjóri embættisins og Halldóri Halldórssyni, fjármálastjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verið falið að taka að sér fjármálastjórn þess til sama tíma.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verður auglýst til umsóknar og veitt frá og með næstu áramótum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024