Ólafur Helgi er mættur til starfa
Eins og kunnugt er hefur Ólafur Helgi Kjartansson tekið við starfi lögreglustjóra á Suðurnesjum, en hann var áður sýslumaður á Selfossi. Hann hefur verið á ferð og flugi um umdæmið frá því að hann tók við starfinu í gær enda í mörg horn að líta. Hér má sjá mynd af Ólafi ásamt nýjum samstarfsmönnum sínum á Suðurnesjum; Skúla Jónssyni, Jóhannaesi Jenssyni, Gunnari Schram og Gunnari Björnssyni. Ólafur Helgi er fyrir miðja mynd