Ólafur Geir í mál við Fegurðarsamkeppni Íslands
Keflvíkingurinn Ólafur Geir Jónsson, sem sviptur var titlinum Herra Ísland 2005, hefur fengið gjafsókn til að höfða skaðabótamál gegn forsvarsmönnum Fegurðarsamkeppni Íslands. Hann segist hafa misst vinnuna fyrir bragðið. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær en ráðgert er að málið verði þingfest í byrjun febrúar.