Bygg
Bygg

Fréttir

Ökuníðingur sviptur; Tekinn á 178 km hraða.
Sunnudagur 6. ágúst 2006 kl. 11:56

Ökuníðingur sviptur; Tekinn á 178 km hraða.

Helgin hefur verið afar róleg hjá Lögreglunni í Keflavík ef frá eru talin nokkur umferðarlagabrot.
Einn ökufantur var tekinn á 178 km hraða á Reykjanesbraut síðdegis á föstudag. Hann var færður á lögreglustöðina í Keflavík og sviptur ökuréttindum sínum.
Tveir ökumenn voru svo teknir í gærdag á Reykjanesbraut. Var annar þeirra mældur á 161 km hraða en hámarkshraði á Brautinni er 90 km.
Næturvaktirnar hafa verið mjög rólegar hjá Keflavíkurlögreglu um helgina.

Mynd úr safni / VF-mynd: elg

Bílakjarninn
Bílakjarninn