Ökuníðingur stöðvaður eftir eftir að hafa mælst á 173 km hraða

Ökunfanturinn hafði ekki sinnt stöðvunarmerkjum og upphófst eftirför lögreglu sem lauk ekki fyrr en komið var inn í Njarðvík og hafði ökufanturinn þá ekið af miklum glannaskap um götur bæjarins. Tókst lögreglunni að stöðva för mannsins, sem var umsvifalaust handtekinn og færður á lögreglustöð, þar sem hann var sviptur ökuleyfi á staðnum.
Eftir skýrslutöku var ökufanturinn frjáls ferða sinna og yfirgaf hann lögreglustöðina á tveimur jafnfljótum.