Ökuníðingur reyndi að stinga lögreglu af á 199 km hraða

Tilræðismaðurinn, sem er fæddur árið 1987, var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða að lokinni skýrslutöku. Dómgreindarleysi hans virðist vera algjört því hann hefur níu sinnum áður verið kærður fyrir of hraðan akstur.
Sjö aðrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum, þar af tveir á Reykjanesbraut á 132 og 129 km hraða. Fjórir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu.