Fréttir

Ökumenn ýmist í símanum eða á ofsahraða
Þriðjudagur 31. maí 2016 kl. 10:58

Ökumenn ýmist í símanum eða á ofsahraða

Sjö hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 147 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Þar var á ferðinni ökumaður um tvítugt. Annar hinna átta ók sviptur ökuréttindum. Þá voru átta ökumenn til viðbótar staðnir að því að tala í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar og fimm óku á nagladekkjum. Loks hafði lögregla afskipti af þremur ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024