Fréttir

Ökumaður viðurkenndi neyslu á fíkniefnakokteil
Þriðjudagur 2. apríl 2019 kl. 10:11

Ökumaður viðurkenndi neyslu á fíkniefnakokteil

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist hafa ýmislegt fleira óhreint í pokahorninu. Við leit í bifreið hans og á heimili, að fenginni heimild, fundust kannabis og amfetamín. Hann viðurkenndi fíkniefnaneyslu við skýrslutöku hjá lögreglu.
 
Annar ökumaður, sem einnig var tekinn úr umferð af sömu ástæðu, viðurkenndi neyslu á kókaíni, amfetamíni og MDMA þegar lögreglumenn ræddu við hann.
 
Þá voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir of hraðan akstur og afskipti höfð af allmörgum ökumönnum vegna fíkniefna – eða ölvunaraksturs eða hvoru tveggja. Voru fáeinir þeirra ökuréttindalausir að auki.
 
Skráningarnúmer voru fjarlægð af fjórum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024