Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

  • Ökumaður varð undir bifreið sem valt
    Frá slysstað í gærkvöldi.
  • Ökumaður varð undir bifreið sem valt
    Frá vettvangi umferðarslyssins í gærkvöldi.
Mánudagur 23. mars 2015 kl. 12:07

Ökumaður varð undir bifreið sem valt

Alvarlegt umferðarslys varð á Ósabotnavegi um kvöldmatarleytið í gær þegar bifreið lenti utan vegar og valt. Ökumaðurinn, kona á þrítugsaldri, varð undir bifreiðinni og slasaðist. Tvö ung börn hennar sem einnig voru í bifreiðinni sluppu, að því er virtist, ómeidd.

Það voru tveir vegfarendur sem komu fyrstir að bifreiðinni á hvolfi utan vegar. Þeir lyftu henni upp og komu henni á hjólin.  Eftir að hafa hringt í neyðarlínuna fóru þeir að sinna börnunum og hlú að konunni. Hún var flutt á Landspítala en ekki sögð í lífshættu. Grunur leikur á að hún hafi ekki verið með öryggisbeltið spennt við aksturinn.


 

Public deli
Public deli