Bygg
Bygg

Fréttir

Ökumaður undir áhrifum fíkniefna ók aftan á tjaldvagn
Ökumaðurinn hafði neytt kannabisefna, amfetamíns, kókaíns og ópiumblandaðs efnis. Hann ók á miklum hraða aftan á tjaldvagn á Reykjanesbraut.
Þriðjudagur 17. maí 2016 kl. 13:30

Ökumaður undir áhrifum fíkniefna ók aftan á tjaldvagn

Bifreið var ekið á miklum hraða aftan á tjaldvagn sem dreginn var af annarri bifreið á Reykjanesbraut við Kúagerði síðasta föstudag. Ekki urðu meiðsl á ökumönnum sem voru einir í bifreiðum sínum en grunur vaknaði um að sá sem ók aftan á tjaldvagninn væri undir áhrifum vímuefna.

Lögreglan á Suðurnesjum færði hann því á lögreglustöð þar sem sýnatökur staðfestu neyslu hans á kannabisefnum, amfetamíni, kókaíni og ópíumblönduðu efni. Fjarlægja varð bæði ökutækin og tjaldvagninn af vettvangi með dráttarbifreið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þá var annar ökumaður færður á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá grunur reyndist á rökum reistur. Hinn þriðji, sem lögregla hafði afskipti af, reyndist vera undir áhrifum áfengis við aksturinn.