Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ökumaður stöðvaður á Reykjanesbrautinni eftir ofsaakstur
Fimmtudagur 10. júní 2004 kl. 11:33

Ökumaður stöðvaður á Reykjanesbrautinni eftir ofsaakstur

Maður á fimmtugsaldri var stöðvaður á Reykjanesbraut í morgun eftir að lögreglubílar frá þremur embættum höfðu veitt honum eftirför á allt að 200 km hraða úr Mjódd í Reykjavík og út eftir Reykjanesi. Ökumaður var loks stöðvaður er bíl Hafnarfjarðarlögreglunnar var ekið utan í bifreið hans norður af Strandarheiði.
Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.

Ökumaðurinn, sem er 44 ára, situr nú í fangaklefa í Kópavogi og bíður þess að verða yfirheyrður. Hann var ekki undir áhrifum áfengis, að sögn lögreglu.
Að sögn varðstjóra hjá Kópavogslögreglu ók maðurinn á miklum hraða suður Reykjanesbrautina í Mjódd er vart varð ferða hans fjórðungi fyrir klukkan 5 í morgun. Sinnti hann engum stöðvunarmerkjum og heldur ekki eftir að hafin var eftirför suður Reykjanesbrautina.

Áætlar lögreglan að þegar mest var hafi maðurinn ekið á um eða yfir 200 km hraða. Linnti hann ekki látum þótt hlutir týndust úr bílnum á leiðinni, svo sem hjólbarðar en hann ók langa vegalengd á berum felgum eftir að einn eða fleiri hjólbarðar tættust af.
Segir lögreglan að maðurinn hafi greinilega ekki ætlað að láta ná sér því hann gaf ætíð í er lögreglubílar tóku að nálgast. Fyrir vikið var gripið til þess ráðs að reyna stöðva för hans með því að aka lögreglubifreið utan í hann. Tókst loks norður af Strandarheiði utanvert á Reykjanesi að stöðva ferð hans með þeim hætti en á endanum hafnaði bifreið mannsins utan vegar.

Á leiðinni fór maðurinn fram úr fjölda bíla og lagði hann bæði vegfarendur og lögreglu í stórhættu, að sögn varðstjóra hjá Kópavogslögreglunni. Er hann ók fram úr rútu fullri af fólki flaug af bíl hans járnhringur sem lenti í hópferðabifreiðinni. „Það var mikil almannahætta á ferðum,“ sagði fulltrúi lögreglunnar í samtali við Morgunblaðið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024