Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ökumaður fékk tæplega 100.000 kr. sekt fyrir hraðakstur
Mánudagur 6. febrúar 2017 kl. 10:57

Ökumaður fékk tæplega 100.000 kr. sekt fyrir hraðakstur

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært 25 ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Undir stýri var erlendur ferðamaður og greiddi hann sekt að upphæð 97.500 krónur á staðnum. Annar ökumaður ók á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Sá var með fimm ára barn sitt í bílnum og auk sektarinnar var athæfi hans tilkynnt til barnaverndar. Þá var ökumaður hópferðabifreiðar staðinn að því að aka á 95 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km og urðu farþegar í bifreiðinni að bíða meðan lögregla ræddi við hann í lögreglubifreið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024