Ökumaður á vespu í vímu og með kannabisefni
	Ökumaður vespu sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrrinótt reyndist hafa ýmislegt á samviskunni. Hann var grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur. Þá var hann með kannabisefni í fórum sínum.
	Þá voru fáeinir ökumenn til viðbótar teknir úr umferð um helgina vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur.
Loks var ökumaður kærður fyrir að aka um og nota ekki öryggisbúnað fyrir 18 mánaða barn sem sat í fangi farþega í bifreiðinni.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				