Ökuferðin kostaði 130.000 krónur
Lögreglan á Suðurnesjum stóð tuttugu og sex ökumenn að of hröðum akstri í umdæminu um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 141 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Sá ökuþór má búast við að glæfraaksturinn kosti hann 130 þúsund krónur. Flest hraðakstursbrotin áttu sér stað á Reykjanesbraut.
Þá voru níu ökumenn staðnir að því að virða ekki biðskyldu eða stöðvunarskyldu. Tvær bifreiðar reyndust ekki vera með skoðunar- og tryggingamál í lagi. Aðra þeirra hafði reyndar átt að færa til aðalskoðunar í apríl á síðasta ári. Loks var einn ökumaður sektaður fyrir að leggja bifreið sinni ólöglega.