Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Ökuferðin endaði ofan í skurði
Mynd frá bílveltunni á Garðvegi. VF mynd: Hilmar Bragi.
Laugardagur 17. febrúar 2018 kl. 11:26

Ökuferðin endaði ofan í skurði

Ökumaður sem var á ferð eftir Skógarbraut í Reykjanesbæ í vikunni missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á hliðinni ofan í skurði við hlið akbrautarinnar. Önnur bifreið lenti utan vegar á Grindavíkurvegi af sömu ástæðum.

Þá varð árekstur við Stekk og ók sá sem talinn er hafa valdið honum á brott án þess að skeyta um hinn ökumanninn. Þá varð bílvelta á Garðvegi og fór sú bifreið eina og hálfa veltu áður en hún staðnæmdist á hliðinni. Á þeim sama vegi varð einnig umferðaróhapp þegar ökumaður virti ekki biðskyldumerki og ók á aðra bifreið sem ekið var eftir Garðvegi.

Public deli
Public deli

Engin alvarleg slys urðu á fólki í þessum óhöppum.