Óku slösuðum til móts við sjúkrabíl
Meðlimir í Björgunarsveitinni Suðurnes, sem voru á leið heim af landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem haldið var á Akureyri um helgina, óku fram á bílveltu rétt sunnan við Staðarskála í Hrútafirði um hálf fimm í gærdag.
Ökumaðurinn var einn í bílnum sem var á toppnum þegar björgunarsveitina bar að. Náðu meðlimir hennar manninum úr bílnum, settu í hálskraga og á bakbretti. Hann var svo fluttur í björgunarsveitarbílnum á móti sjúkrabíl sem kom frá Hvammstanga.