Óku alltof hratt og tapa tugum þúsunda króna

Þá voru þrír ökumenn kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur í Reykjanesbæ og einn fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu.
Í gærkvöldi voru þrír ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut. Sá er hraðast ók mældist á 117 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Sá sem hraðast ók verður sektaður um 50.000 krónur, auk þess að fá punkt í ökuferilsskrá.
Tíu ökumenn voru áminntir þar sem ljósabúnaður ökutækja þeirra voru í ólagi.