Ókeypis Brian Tracy vel sóttur á Ásbrú
Bandaríski stjórnunarráðgjafinn Brian Tracy hélt opinn fyrirlestur í Andrews-menningarhúsinu á Ásbrú í dag og er fyrirlestrinum nýlokið. Ókeypis aðgangur var að fyrirlestrinum en það var KADECO, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sem bauð upp á viðburðinn. Um 300 manns nýttu sér tækifærið og hlýddu á kappann í eina og hálfa klukkustund nú áðan.
Fyrirlestrar Brian Tracy hvetja þátttakendur til góðra verka, segir í kynningu á fyrirlesaranum og þeir sem mættu í Andrews í dag fengu það í vegarnesti að þeir myndu ganga út með fjársjóð af hagnýtri þekkingu, ráðum og aðferðum sem þú getur strax farið að nota til að gera betur hvort heldur sem er í vinnunni, náminu eða í einkalífinu.
Fyrirlestur Brian Tracy í dag var stutt yfirlit þess besta og nýjasta úr Árangurssmiðju Tracy.
Hann setur þekkinguna fram í ljósi þess hversu vel hann þekkir orðið til á Íslandi en hingað kom hann fyrst til að halda fyrirlestur fyrir 12 árum síðan og hefur verið reglulegur gestur á Íslandi síðan.
VF-myndir: Hilmar Bragi