Ók sviptur með fíkniefni meðferðis
Lögreglan á Suðurnesjum handtók nokkra ökumenn um helgina vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Tveir þeirra reyndust aka sviptir ökuréttindum og sá þriðji hafði aldrei öðlast slík réttindi. Einn þessara þriggja var með fíkniefni í fórum sínum þegar hann var handtekinn.
Þá var einn ökumannanna, grunaður um ölvunarakstur, 17 ára og var því brot hans tilkynnt barnaverndarnefnd.
Þá var einn ökumannanna, grunaður um ölvunarakstur, 17 ára og var því brot hans tilkynnt barnaverndarnefnd.