Ók ölvaður um á tjaldstæði
Ók ölvaður um á tjaldstæði
Lögreglan í Keflavík handtók mann á tjaldstæðinu í Vogum á aðfaranótt sl. laugardags, grunaðan um ölvun við akstur.
Fólk í nágrenninu tók eftir einkennilegu ökulagi umrædds manns og gerði lögreglu viðvart. Maðurinn var færður á lögreglustöðina í Keflavík þar sem tekin var af honum skýrsla.