Ók niður hraðamyndavél á Garðvegi
Ökumaður sem ók Garðveg í slabbi og lélegu færi í gærkvöldi varð fyrir því óláni að missa stjórn á bíl sínum skömmu áður en hann kom að hraðamyndavélunum í Leiru. Skipti engum togum að bíllinn ók niður aðra myndavélina áður en hann staðnæmdist fastur úti í móa.
Ekki fylgir sögunni hvort eftirlitsmyndavélin hafi náð mynd af árekstrinum.
Mynd: Frá slysstað á Garðvegi á þriðjudagskvöld. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson