Ók næstum yfir höfuð tjaldbúa
Ökumaður bifreiðar má þakka fyrir að verða ekki mannsbani í nótt þegar hann ók inn á tjaldsvæðið í Garði og staðnæmdist á tjaldi. Ökumaðurinn var ölvaður. Tjaldbúinn vaknaði upp þegar hjól bifreiðarinnar var einungis um 20 cm frá höfði hans.
Ökumaðurinn og farþegi í bifreiðinni voru handteknir skömmu síðar af lögreglunni á Suðurnesjum og gistu fangageymslur lögreglunnar. Farþeginn, sem einnig var ölvaður, er grunaður um að hafa ekið bifreiðinni frá tjaldsvæðinu. Þeir voru yfirheyrðir þegar áfengisvíman var runnin af þeim.
Sjö ökumenn voru í dag kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni . Sá er hraðast ók mældist á 141 km/klst. en hann greiddi sektina kr. 67.500 á staðnum.