Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ók á þreföldum hámarkshraða
Mánudagur 6. nóvember 2017 kl. 10:28

Ók á þreföldum hámarkshraða

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina ók á 103 km hraða, ásamt því að aka of hratt var hann einnig með aðra bifreið í dráttartaug á Reykjanesbrautinni. Þegar lögregla ræddi við ökumanninn eftir að hann var stöðvaður var honum tilkynnt að hámarkshraði þegar verið væri að draga bíl með þessum hætti væri 30 km á klukkustund. Ökumaðurinn ók því á rúmlega þreföldum hámarkshraða, bíllinn sem hann dró var einnig ljóslaus að aftan.

Nokkrir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 157 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Loks var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur og annar vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá síðarnefndi viðurkenndi neyslu fíkniefna, hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum ævilangt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024