Ók á og stakk af
Ekið var á rauða Honda Accord bifreið sem var lagt í stæði utan við Samkaup-úrval í Njarðvík rétt fyrir hádegi í gær. Tjónvaldur ók af vettvangi án þess að láta vita af sér, en vinstra framhorn Hondunnar var nokkuð dældað.
Í gærdag voru svo þrír ökumenn kærðir fyrir stöðvunarskyldubrot og tveir ökumenn fyrir að vera ekki með öryggisbelti spennt við aksturinn. Þá var einn tekinn fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað og einn fyrir hraðakstur á Hafnargötu í Keflavík. Mældur hraði 85 km þar sem hámarkshraði er 50 km.