Fimmtudagur 7. október 2004 kl. 09:46
Ók á mannlausa bifreið og stakk af

Lögreglu barst tilkynning í gærmorgun um að ekið hafi verið á kyrrstæða og mannlausa bifreið við Faxabraut í Keflavík og tjónvaldur stungið af. Líklegt er talið að atburðurinn hafi átt sér stað kvöldið eða nóttina áður. Litur af bifreið tjónvalds var í skemmd bifreiðarinnar sem ekið var á og leikur grunur á hver þar hefur verið að verki.
Tvö önnur minniháttar umferðaróhöpp urðu í gærdag. Annað á gatnamótum Sunnubrautar og Skólavegur og hitt á gatnamótum Hafnargötu og Aðalgötu.