Ók á ljósastaur
Bifreið var ekið á ljósastraur við Vallarbraut í Reykjanesbæ í gær. Tvær konur voru í bílnum og meiddist sú, sem var farþegi, lítillega. Hún var flutt með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Konurnar voru báðar í öryggisbelti. Bifreiðin var mikið skemmd á annarri hliðinni eftir óhappið.