Ók á grindverk og stakk af
Tvö minniháttar umferðaróhöpp komu til kasta lögreglunnar í Keflavík í gær. Í öðru tilvikinu var ekið á grindverk við Brekkubraut í Reykjanesbæ og ók viðkomandi á brott á þess að tilkynna um atvikið.
Annars var lítið um að vera hjá lögreglu í gær og í nótt. Einn ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni, hann var á 118 km hraða á klst. Auk þess hafði lögregla afskipti af einum ökumanni sem ók á móti einstefnu og einum sem lagði ólöglega.