Ók á bíl og stakk af
Ökumaður sem var að aka fram úr annarri bifreið eftir Reykjanesbraut í gær missti stjórn á sinni bifreið með þeim afleiðingum að hún lenti á hlið fyrrnefnda ökutækisins. Hann hélt för sinni áfram án þess að stansa, lögreglan hafði upp á honum og þarf hann að standa skil á gerðum sínum.
Þá varð harður árekstur á Sandgerðisvegi þegar tvær bifreiðir skullu saman, hafði ökumaður annarrar þeirra misst stjórn á henni í hálku með þeim afleiðingum að hún skall framan á hinni bifreiðinni sem kom út gagnstæðri átt. Ökumenn sluppu ómeiddir en bifreiðarnar voru óökufærar.