Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Ók á bíl og stakk af
Föstudagur 11. nóvember 2005 kl. 09:35

Ók á bíl og stakk af

Um kl 21 í gærkvöldi var lögreglu tilkynnt að ekið hafi verið á bifreið utan við Félagsheimilið Stapann í Njarðvík og tjónvaldur ekið á brott. 

Bifreiðin sem ekið var á er af gerðinni BMW, 5 línan, grá að lit.  Ákoma var á hægra framhorni bifreiðarinnar.  Atvikið átti sér stað milli kl. 17:45 til 21:00, en ekkert er vitað um tjónvald.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir um að snúa sér til lögreglu.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100