Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Ók á 180 km hraða á Reykjanesbraut
Þriðjudagur 18. október 2016 kl. 10:46

Ók á 180 km hraða á Reykjanesbraut

Allmargir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á ferð eftir Reykjanesbraut og mældist á 180 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á lögreglustöð.

Annar ökumaður, sem einnig ók Reykjanesbrautina, mældist á 123 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km. Hann var grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Auk þessa tveggja voru tíu til viðbótar kærðir fyrir hraðakstur. Af þeim voru átta erlendir ferðamenn. Lögregla fjarlægði skráningarnúmer af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn