Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ók á 166 kílómetra hraða
Miðvikudagur 27. maí 2015 kl. 10:45

Ók á 166 kílómetra hraða

Ellefu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 166  km. hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. 

Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á lögreglustöð, auk þess sem hann þarf að greiða 150.000 króna fjársekt og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Annar ökumaður mældist á 162 km. hraða og sá þriðji ók á 157. km. hraða.

Aðrir óku ekki eins hratt en þó vel yfir hámarkshraða.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024