Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Ók á 159 km hraða
Þriðjudagur 3. febrúar 2015 kl. 07:00

Ók á 159 km hraða

Fær 140 þúsunda sekt.

Ökumaður, sem ók Reykjanesbrautina um helgina, mældist á 159 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Hans bíður 140 þúsund króna fjársekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Fleiri ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur en þeir fóru sér nokkru hægar heldur en sá ofangreindi.

Þá hafði lögreglan á Suðurnesjum afskipti af ökumanni sem ók bifreið sem hafði ekki verið færð til skoðunar á réttum tíma. Hún reyndist að auki ótryggð þannig að skráningarnúmer voru fjarlægð af henni. Þá voru allmargir ökumenn staðnir að því að virða ekki stöðvunarskyldu eða leggja ólöglega.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25