Ók á 135 km hraða á Reykjanesbraut
Lögreglan á Suðurnesjum kærði nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 135 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Annar mældist á 103 kílómetra hraða, einnig á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 70 km á klukkustund. Þá ók einn án þess að hafa ökuskírteini meðferðis.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				