Fimmtudagur 22. apríl 2004 kl. 15:01
Ók á 127 km hraða þar sem hámarkshraði er 70
Ökumaður sem gripinn var að lögreglunni í Keflavík um níuleytið í morgun á Reykjanesbraut á móts við Voga á von á ökuleyfissviptingu. Bifreið mannsins mældist á hraðanum 127 km/klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70 km/klst. Morgunblaðið á Netinu greindi frá þessu.