Óhressir farþegar vilja mat og drykk
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um bann við verkfalli Flugvirkjafélags Íslands og verður það lagt fyrir Alþingi í dag. Icelandair stefnir að því hefja flug síðdegis í dag, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en málinu lýkur á Alþingi.
Áætlunarflug Icelandair hefur stöðvast í morgun en farþegar sem eiga flug til eða frá landinu eru hvattir til að fylgjast með fréttum af framgangi málsins.
Um 100 farþegar sem komu frá Bandaríkjunum í morgun bíða inni í sjálfri flugstöðinni og talsverður fjöldi var einnig í brottfararsal flugstöðvarinnar nú fyrir hádegið en höfðu ekki verið innritaðir. Talsverðrar óánægju gætti hjá því fólki en það vildi fá bæði mat og drykk frá Icelandair.
Þeir sem lenda í því að verða strandaglópar erlendis eða hér á landi vegna verkfalls flugvirkja þurfa að bera allan kostnað vegna gistingar á hótelum sjálfir.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson