Fimmtudagur 31. ágúst 2006 kl. 21:55
Og Vodafone eflir GSM kerfið fyrir Ljósanótt

Og Vodafone ætlar að stækka GSM kerfi sitt fyrir Ljósanótt í Reykjanesbæ, sem hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta í Reykjanesbæ þá daga sem hátíðin stendur yfir. Og Vodafone hefur lagt mikla áherslu á bætt GSM samband víða um land í sumar, einkum í kringum stórviðburði, svo sem tónleika og útihátíðir.