Miðvikudagur 26. janúar 2000 kl. 13:58
Ofskynjunarlyf í tísku á Suðurnesjum

-Nokkur ungmenni flutt á sjúkrahús vegna ofneysluAð undanförnu hefur mikið borið á neyslu ofskynjunarlyfja á Suðurnesjum. Um áramótin var mikið af eiturlyfjum í umferð og voru nokkur ungmenni flutt á sjúkrahús vegna ofneyslu þeirra. Vinsælustu efnin eru LSD, eða sýra og E-pillan. Eiturlyfjasalar beita ákveðinni markaðssetningu, sem er að telja börnum og unglingum trú um að söluvara þeirra sé með öllu hættulaus. Það er ekki neitt til sem heitir hættulaus E-pilla, né sýra.Geðveiki og dauðiLSD er ofskynjunarlyf og var fundið upp á tilraunastofu árið 1938. Sýra hefur verið í umferð á Íslandi síðan 1969. Neysla efnisins hefur komið í bylgjum og náði hámarki á árunum 1972-1973. Stór hluti þeirra einstaklinga sem neyttu LSD á þessum tíma hafa verið vistaðir á stofnunum meira og minna síðan. Eins voru mörg voðaverk framin undir áhrifum þessara efna. Vegna þeirra hörmulegu afleiðinga sem neysla efnisins hafði fyrir marga, hvarf LSD af markaðinum í mörg ár. Varanlegar heilaskemmdir„Ungt fólk sem neytir þessara efna í dag, var ekki fætt þegar LSD var síðast í tísku á Íslandi, þ.e. snemma á áttunda áratugnum. Unga fólkið hefur því kannski ekki vitneskju um hvers vegna þetta efni hvarf af markaðinum á sínum tíma, né hverjar afleiðingar af neyslu þessa stórhættulega efnis geta orðið. Sýra hefur stórtæk árhrif á starfsemi heilans en í hvert skipti sem hennar er neytt verða skemmdir á taugastöðvum heilans. Þessar taugastöðvar endurnýja sig ekki þannig að skaðinn er óbætanlegur“, sagði Arngrímur Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður.E-pillan er ekki gleðigjafiOfskynjanir og kæruleysi eru fylgifiskar E-pillunnar. Áhrif hennar á taugakerfið fela í sér stífleika í vöðvum sem getur endað með krampa, sem lyf vinna jafnvel illa eða ekki á. Neysla E-pillunnar getur stórhækkað líkamshita og illmögulegt getur verið að ná honum niður aftur. Áhrif á E-töflunnar á hjarta- og æðakerfi geta leitt til lækkunar blóðþrýstings og/eða truflana á hjartslætti. Þá geta eituráhrif komið fram í nýrum og blóðstorknunartruflanir valdið heilablæðingum, auk geðrænna áhrifa, s.s. þunglyndi og ofsóknarkennd. Margi einstaklingar hafa þegar látið lífið vegna E-töflunnar.Sama efnið og í gamla dagaArngrímur sagði að sölumenn dauðans beittu öllum aðferðum til að koma vöru sinni á framfæri. „Þeir halda því gjarnan fram að þetta sé ekki sama sýran sem eyðilagði líf fjölda fólks í gamla daga, þ.e. fyrir um þrjátíu árum síðan og að E-pillan sé hættulaus og mikill gleðigjafi. Sannleikurinn er sá að þetta er nákvæmlega sömu efnin og áður. Eiturlyfjaneysla er ekkert annað en rússnesk rúlletta. Í þeirri rúllettu eru kúlur í öllum hólfum“, sagði Arngrímur.