Fimmtudagur 17. júlí 2008 kl. 09:32
Ofsaakstur á Reykjanesbraut
18 ára stúlka ók á 199 km/klst hraða á Reykjanesbrautinni í nótt. Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði stúlkuna og svipti hana ökuréttindum á staðnum.
Stúlkan fær sekt sem verður að öllum líkindum á annað hundrað þúsund krónur.