Ofninn var aðeins nýttur 50% hjá United Silicon
Vandamál vegna lyktar voru tengdar óstöðugleika í rekstri ofnsins
Ofninn í kísilverksmiðju United Silicon var aðeins í notkun í 50% af tímanum meðan hún starfaði. Búnaður til steypunnar bilaði oft og þá þurfti að grípa til neyðarúthleypinga. Þá voru vandamál vegna lyktar tengdar óstöðugleika í rekstri ofnsins, tíðum stoppum og of lágu hitastigi á ofninum. Þetta kom fram í máli Arnar Steinars Sigurðssonar frá Verkfræðistofunni Verkís á íbúafundi í Stapa í kvöld.
Örn fór yfir þróun mála varðandi rekstur kísilvers USi og sagði frá helstu framkvæmdum sem verða m.a. þessar:
- Endurbætur á meðhöndlun, flutningi og geymslu hráefna
- Endurbætur á ofni og stoðkerfum í ofnhúsi
- Endurbætur á málmsteypu og meðhöndlun á steyptum málmi
- Endurbætur á hreinsun útblásturs og meðhöndlun reyks
- Uppsetning neyðarskorteins
- Lagfæringar álóð og umhverfi innan lóðar
- Innleiðing umhverfisstjórnunarkerfis
- Ný starfsmannaaðstaða
- Endurmætur á mannvist í ofnhúsi
- Nýtt verkstæðishús
- Breytingar á meðhöndlun og geymslu framleiddrar vöru
Frummatsskýrsla:
Mat framkvæmdaraðila á umhverfisáhrifum er sett fram í frummatsskýrslu og birt á vef Skipulagsstofnunar.
Matsskýrsla:
Framkvæmdaraðili leggur matsskýrslu fram til Skipulagsstofnunar þegar hann hefur unnið úr athugasemdum frummatsskýrslu og gert grein fyrir aafstöðu sinni til þeirra
Álit Skipulagsstofnunar:
Skipulagsstofnun vinnur álit um mat á umhverfisáhrifum og kynnir framkvæmdaraðila, almenningi og leyfisveitendum.
Örn fór yfir hvernig staðið yrði að framkvæmdum og sagði að annar íbúafundur yrði haldinn í apríl 2019.