Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Öflugasti jarðskjálfti síðasta árs var 5,4 stig í Grindavík
Úr verslun Nettó í Grindavík eftir jarðskjálfta. VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Miðvikudagur 4. janúar 2023 kl. 16:35

Öflugasti jarðskjálfti síðasta árs var 5,4 stig í Grindavík

Yfir 36 þúsund jarðskjálftar hafa verið staðsettir á Íslandi árið 2022, samanborið við rúmlega 50 þúsund árið áður. Veðurstofa Íslands greinir frá þessu í dag.

Stærsti skjálftinn varð þann 31. júlí, um 2 km norðaustur af Grindavík, og var hann sá öflugasti sem fundist hefur í Grindavík síðan umbrotin á Reykjanesskaga hófust árið 2020. Sá skjálfti mældist 5,4 stig.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fjölmargir skjálftar urðu á Reykjanesskaga í tengslum við kvikuinnskot við Fagradalsfjall í lok júlí. Í kjölfar skjálftahrinu í lok júlí braust út eldgos í Meradölum 3. ágúst en gosið stóð í um þrjár vikur.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25