Ofbeldi örþreyttra leigubílstjóra
Í grein sem Magnús Jóhannsson framkvæmdastjóri Ökuleiða í Keflavík ritar í Víkurfréttir í síðustu viku og kallar: „Frumhlaup SBK“, er talsvert af villum og rangfærslum sem ég tel mér skylt að leiðrétta, skrifar Einar Steinþórsson, framkvæmdastjóri SBK.Í þessu verkfalli Sleipnis hefur SBK gætt þess að standa utan við þær deilur og við höfum gætt þess vandlega að fara ekki inn á verksvið Sleipnismanna á neinn hátt. Við höfum ekki gengið í þeirra störf, heldur sinnt okkar vinnu eins og áður, enda hafa verkfallsverðir látið okkar bíla afskiptalausa, utan eitt atvik í byrjun verkfalls sem skrifast sem mistök Sleipnismanna.Þrátt fyrir að við höfum ekki verið í verkfalli og haft nóg að gera, höfum við talið að verkfallið sé mjög skaðlegt fyrir ímynd Íslands sem ferðaþjónustulands og höfum viljað eins og flestir aðrir (hugsanlega ekki leigubílstjórar) að verkfallið leystist sem fyrst. Flest rútufyrirtæki landsins voru komin í gang aftur vegna þess að búið var að fá lögbann á meintar ólöglegar verkfallsaðgerðir Sleipnismanna, gegn ákveðnum fyrirtækjum.Eftir því sem á leið hafði þetta verkfall því orðið sára lítil áhrif, nema þá helst við flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem leigubílstjórar úr Reykjanesbæ mökuðu krókinn duglega.Eftir að hafa ítrekað fengið það staðfest að leigubílar neituðu að aka fólki til Keflavíkur í veg fyrir áætlunarbíl til Reykjavíkur, tókum við á það ráð að fara með strætisvagn í flugstöðina og aka fólki sjálfir í veg fyrir rútuna og þá byrjuðu lætin sem ollu því að blaðamaður hringdi í undirritaðann.Fram kemur í grein Magnúsar, sem hann hefur úr DV að ég hafi sagt að 1.000 kr væru helmingi og hátt gjald til Keflavíkur. Hið rétta er að ég sagði blaðamanni að við hefðum dæmi um 2.000 kr, sem ég sagði að væri u.þ.b. helmingi of hátt, sem það er. Magnús segir að ég fullyrði að leigubílstjórar taki tugi þúsunda fyrir farið til Reykjavíkur. Ekki veit ég hvaðan Magnús hefur þessar upplýsingar, en ruglar því trúlega saman við fréttaflutning þar sem svona tölur hafa komið fram. Magnús fullyrðir ennfremur að ég hafi beðist afsökunar á þessum ummælum, sem er fráleitt, þar sem ég hef aldrei sagt þetta og þ.a.l. ekki beðist afsökunar á neinu.Magnús segir að við höfum ekki rétt á því að taka fólk upp við flugstöðina og höfum verið reknir í burtu. Hið rétta er að við ákváðum að draga okkur til hlés á meðan væri verið að undirbúa lögbannsúrskurð á ólöglegar aðgerðir Sleipnismanna. Svo heppilega vildi til að á meðan var verkfallinu frestað til 12. ágúst, og reynir því ekki á það fyrr en í ljós kemur hvort verkfallið heldur áfram á þeim degi.Staðreyndin er sú að SBK hefur fullan rétt á að taka upp farþega við flugstöðina en vildi ekki nýta sér þann rétt, einfaldlega til þess að virða þetta verkfall Sleipnis, þar sem þeir höfðu að mestu leyti séð um þennan akstur fram að þessu.Með framkomu sinni komu leigubílstjórar þessari atburðarás af stað, sem mögulega hefur átt sinn þátt í því að verkfalli var frestað til 12. ágúst.Magnús segir í grein sinni að ég tönglist á Ökuleiðum. Hið rétta er að blaðamaður spurði mig hvort átök hefðu átt sér stað á milli okkar manna og leigubílstjóra frá Ökuleiðum. Ég svaraði því þannig til að það væri ekkert sem orð væri á gerandi. Að öðru leyti nefndi ég aldrei Ökuleiðir, heldur talaði um leigubílstjóra almennt.Atvikið sem blaðamaður var að vitna til og ég gerði lítið úr, var að greinarhöfundur Magnús Jóhannsson framkvæmdastjóri Ökuleiða kýldi einn af okkar starfsmönnum í kviðinn. Það kom sér mjög vel að viðkomandi starfsmaður SBK sem varð fyrir árásinni er hraustmenni mikið og drengur góður og vildi ekki gera neitt úr atvikinu. Hann taldi að Magnús hefði sleppt sér augnablik í hita leiksins. Að þessu atviki varð lögreglumaður vitni og varaði hann Magnús harðlega við frekara ofbeldi.Það er spurning hvort ekki sé orðið tímabært að koma reglum yfir vökutíma leigubílstjóra, þannig að þeir geti ekki vakað sólarhringum saman til þess að „forða fólki frá neyðarástandi“ eins og Magnús orðar það svo skemmtilega í grein sinni. Erlendis gilda ákveðnar reglur um hvíldartíma leigubílstjóra og mér er ekki kunnugt um að slíkar reglur gildi hér á landi.Hugsanlega myndu slík lög forða örþreyttum leigubílstjórum frá því að grípa til ofbeldis gagnvart kollegum sínum úr bílstjórastétt.Dylgjur Magnúsar um afskipti annarra fyrirtækja af stjórnun SBK eru ekki svaraverðar.Ég vona að þessar útskýringar varpi réttu ljósi á þessa atburði og óska Magnúsi og öðrum leigubílstjórum bæði frá Ökuleiðum og Aðalstöðinni alls hins besta í framtíðinni.Einar SteinþórssonFramkvæmdastjóri S.B.K. hf.