„Ofbeldi á heimilum á ekki að líða“
„Við viljum koma þeim skýru skilaboðum til fólks að ofbeldi á heimilum verði ekki liðið,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum í viðtali við mbl.is um helgina, en lögreglan á Suðurnesjum hefur síðustu mánuðina lagt sérstaka áherslu á að rannsaka heimilisofbeldi. Það sem af er þessu ári hefur sjö sinnum verið lögð fram krafa um nálgunarbann og brottvísanir á landinu öllu. Fimm af þessum málum eru á Suðurnesjum.
Árið 2010 voru 17 heimilisofbeldismál tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum. Aðeins einu af þessum málum var vísað frá rannsóknardeild til lögfræðisviðs sem sér um að gefa út ákærur eða fella mál niður. Þetta eina mál var hins vegar fellt niður vegna skorts á sönnunum.
Nánar er fjallað um málið hér og birt viðtöl við þau Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjón, Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, lögfræðing hjá lögreglunni á Suðurnesjum og Skúla Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjón.